Fundur 29.09.2009

February 8th, 2010

FUNDARGERÐ.                                                   Fundur 29.09.2009

Ár 2009, mánudagur 29. september kl. 20:30, var haldinn 2. fundur starfsárs Roundtable 11, Vestmannaeyjum.  Fundarstaður var húsnæði félagsins.  Fundinn sátu:  Flóvent Máni Theodórsson, Hafþór Snorrason, Ágúst Ingi Jónsson,  Haukur Jónsson, Heiðar Hinriksson,  Sigurður Árnason, Örn Hilmisson og Hlynur Guðmundsson.

Formaður setti fund.  Hafþór Snorrason átti fundinn og stjórnaði honum.

1. Á fundinn var mættur Hlynur Guðmundsson starfsmaður hjá Húsasmiðunni Vestmannaeyjum en hann hefur lýst yfir áhuga á að gerast félagsmaður.  Haldinn var kynningarhringur þar sem félagsmenn kynntu sig.

2.  Ræddur var undirbúningur fyrir fulltrúaráðsfund.

3.  Farið var yfir greiðslustöðu félagsgjalda.  Í einu tilviki er um veruleg vanskil að ræða.  Gjaldkera falið að ræða við viðkomandi og heimilað að handrukka og beita nauðsynlegu ofbeldi til þess að innheimta skuldina.

4.  Félagsmenn RT-11 skrái sig á fulltrúaráðsfund, þannig að hægt sé að halda utanum þan fjölda sem verður á fundinum.

5.  Farið var yfir tillögur til lagabreytinga og breytinga á siðareglum RTÍ.  Félagsmenn komi athugasemdum ef einhverjar eru til formanns.

6.   Tillaga verði lögð fram á fulltrúaráðsfundinum frá RT-11 að klúbbhús verði „friðhelg“.

Fleira ekki gert.  Fundi slitið kl. 21:50.
Fundarritari,  Haukur Jónsson.

Comments are closed.

Formenn RT 11 Vestmannaeyjum

Frá upphafi


Aðalsteinn "Gosi" Baldursson
1997-1998
Björgvin Arnaldsson
1998-1999
Sigurður Árnason
1999-2000
Heiðar Hinriksson
2000-2001
Pétur Sigurjónsson
2001-2002
Aðalsteinn Baldursson
2002-2003
Jóhann Þorvaldsson
2003-2004
Haukur Jónsson
2004-2005
Hafþór Snorrason
2005-2006
Jóhann Þorvaldsson
2006-2007
Örn Hilmisson
2007-2008
Heiðar Hinriksson
2008-2009
Flóvent Máni Theodórsson
2009-2010