Fundur 23.11.2009
FUNDARGERÐ. Fundur 23.11.2009
Ár 2009, mánudagur 23. nóvember kl. 20:00, var haldinn 6. fundur starfsárs Roundtable 11, Vestmannaeyjum. Fundarstaður var húsnæði félagsins. Fundinn sátu: Flóvent Máni Theodórsson, Heiðar Hinriksson, Hermann Sigurgeirsson, Hafþór Snorrason, Haukur Jónsson, Sigurður Árnason og Örn Hilmisson. Sigurhans Guðmundsson og Sindri Freyr Ragnarson voru boðaðir á fundinn en komust ekki.
Jóhann Þorvaldsson átti fundinn, Flóvent Máni stjórnaði í fjarveru hans.
Dagskrá:
1. Fyrir fundinum lá verðtilboð í barmerki. Samþykkt að kaupa 400 stk. á kr. 86.800,-
2. Fram kom að Jóhann Þorvaldsson er væntanlega búinn að útvega íbúð til afnota á næsta fulltrúaráðsfundi á Akureyri 12. – 13. febrúar 2010..
3. Fyrir liggur svarbréf frá forseta landstjórnar RTÍ þar sem fram kemur að álit þeirra er að endurgreiða beri þeim sem fara fram slíkt vegna viðburða 2. fulltrúaráðsfundar í Eyjum 10. – 11. október sl.. Landstjórn greiðir mismun til RT-11, allt að kr. 111.973. Gjaldkeri hefur sent forseta bréf varðandi frekari útfærslu. Landstjórn hefur áhuga á að koma til Eyja í heimsókn þar sem m.a. vinnureglur og framkvæmd v. framtíðartilhögun greiðslna á fulltrúaráðsfundum yrði rædd. Formanni fallið að ræða við forseta um dagsetningu heimsóknar.
4. Pottafundur verður haldinn laugardaginn 12. desember n.k.. Sigurði falið að athuga með bústað fyrir fundinn.
5. Rædd staða félagsgjalda. Almennt er staðan góð en hjá einum félagsmanni er um langvarandi vanskil að ræða. Gjaldkera falið að ræða við viðkomandi aðila um uppgjör á skuld, að öðrum kosti verði ekki komist hjá því að vísa honum úr klúbbnum í samræmi við 2. tl. gr. 2.5 í lögum Round Table.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 21:25.
Fundarritari, Haukur Jónsson.