Fundur 18.01.2010

February 8th, 2010

FUNDARGERÐ.                                                   Fundur 18.01.2010

Ár 2010, mánudagur 18. janúar  kl. 20:00, var haldinn 8. fundur starfsárs Roundtable 11, Vestmannaeyjum.  Fundarstaður var húsnæði félagsins.  Fundinn sátu:   Ágúst Ingi Jónsson, Flóvent Máni Theodórsson, Hafþór Snorrason, Haukur Jónsson, Hlynur Guðmundsson, Jóhann Þorvaldsson og Sigurður Árnason.  Örn Hilmisson boðaði forföll.

Ágúst Ingi Jónsson átti fundinn og stjórnaði honum.

Dagskrá:

1.  Farið var yfir og ræddar tillögur til breytinga á lögum og siðareglum Roundtable.  Sigurði falið að koma hugmyndum RT-11 um meðferð hagnaðar eða taps á fulltrúaráðsfundum og árshátíð til landstjórnar RTÍ og móta tillögur til breytinga á lögum vegna þess.

2. Samþykkt samhljóða að klúbburinn tæki þátt í kostnaði þeirra sem sækja fulltrúaráðsfund 12. – 14. febrúar n.k. og fljúga frá Eyjum sem nemur þáttökukostnaði á atburði helgarinnar eða um kr. 4.900,-

3.  Fundurinn samþykkir að formannskeðja sé alfarið á ábyrgð starfandi formanns.

4. Rætt um að Rotaryklúbbur í Vestmannaeyjum fái möguleg afnot af húsnæði félagsins til fundarhalda gegn leigu.  Jóhanni og hússtjórn falið að vinna að frekari framgang málsins.

5. Fundur sem á að vera 15. febrúar n.k. er flýtt til mánudagsins 8. febrúar vegna fulltrúaráðsfundar á Akureyri 12. – 14. febrúar n.k.

Fleira ekki gert.  Fundi slitið kl. 21:50.
Fundarritari,  Haukur Jónsson.

Comments are closed.

Formenn RT 11 Vestmannaeyjum

Frá upphafi


Aðalsteinn "Gosi" Baldursson
1997-1998
Björgvin Arnaldsson
1998-1999
Sigurður Árnason
1999-2000
Heiðar Hinriksson
2000-2001
Pétur Sigurjónsson
2001-2002
Aðalsteinn Baldursson
2002-2003
Jóhann Þorvaldsson
2003-2004
Haukur Jónsson
2004-2005
Hafþór Snorrason
2005-2006
Jóhann Þorvaldsson
2006-2007
Örn Hilmisson
2007-2008
Heiðar Hinriksson
2008-2009
Flóvent Máni Theodórsson
2009-2010