Fundur 05.01.2010
FUNDARGERÐ. Fundur 05.01.2010
Ár 2010, mánudagur 5. janúar kl. 19:30, var haldinn 7. fundur starfsárs Roundtable 11, Vestmannaeyjum. Vinnustaðarfundur var haldinn í Höllinni Vestmannaeyjum og síðar framhaldið í húsnæði félagsins. Fundinn sátu: Ágúst Ingi Jónsson, Flóvent Máni Theodórsson, Heiðar Hinriksson, Hermann Sigurgeirsson, Hafþór Snorrason, Haukur Jónsson, Hlynur Guðmundsson og Örn Hilmisson. Á fundinn kom jafnframt Sindri Freyr Ragnarson sem var boðaður á fundinn.
Aðalsteinn Baldursson hafði boðaða til vinnustaðarfundar en gat ekki mætt. Heiðar Hinriksson stjórnaði í fjarveru hans.
Dagskrá:
1. Einar Björn Árnason matreiðslumaður og eigandi fyrirtækisins Einsa Kalda kynnti starfsemi veisluþjónustunnar í Höllinni Vestmannaeyjum. Kynningin var lífleg og góð og þökkuðu félagsmenn Einari fyrir kynninguna sem lauk kl. 21:20.
2. Fundi var framhaldið í húsnæði félagsins kl. 21:30. Farið var farið yfir og ræddar hugmyndir varðandi fulltrúaráðsfundi/árshátíðar og meðferð hagnaðar eða taps. Myndaður yrði sjóður til að „baktryggja“ þá klúbba sem halda fundi eða árshátíðar. Ákveðið að Heiðar sendi drög í tölvupósti og gefst félagsmönnum kostur á að koma á framfæri tillögum.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 22:15.
Fundarritari, Haukur Jónsson.