Fundur 31.10.11
FUNDARGERÐ. Fundur 31.10.11
Ár 2011, mánudagur 31. október kl. 19:00, var haldinn 6. fundur starfsárs Roundtable 11, Vestmannaeyjum. Fundarstaður var húsnæði félagsins. Fundinn sátu, Ágúst Ingi Jónsson, Flóvent Máni Theódórsson, Hafþór Snorrason, Haukur Jónsson, Hlynur Guðmundsson, Heiðar Hinriksson, Hermann Sigurgeirsson og Sigurþór Hjörleifsson sem kom á fund undir 3. tl.
Forföll tilkynntu: Aðalsteinn Baldursson, Jóhann Þorvaldsson og Sigurður Árnason.
Umsjón fundarins var í höndum Heiðar Hinrikssonar.
Dagskrá:
1. Matarfundur, kjúklingaréttur að hætti Hlyns.
2. Árhátíðarmál. Samþykkt að Heiðar væri „verkstjóri“ árhátíðarstjórnar og honum til aðstoðar væru embættismenn klúbbsins. Árshátíðarstjórn hefur fulla heimild til að skipta verkum á félagsmenn. Félagsmenn eru hvattir til að senda allar tillögur til Heiðars sem nýta má sem skemmtiefni á komandi árhátíð. Samþykkt að stjórnin fái a.m.k. eina flösku til afnota til að liðka fyrir hugmyndaflæði.
3. Kosið var um Sigurþór sem félagsmann, hann var samþykktur samhljóða. Íframhaldi var hann boðaður á fund og tekin formlega inní félagið.
Fleira ekki gert.
Fundi slitið kl. 21:00.
Fundarritari, Haukur Jónsson.