Fundur 28.11..11
FUNDARGERÐ. Fundur 28.11.11
Ár 2011, mánudagur 28. nóvember kl. 20:00, var haldinn 8. fundur starfsárs
Roundtable 11, Vestmannaeyjum. Fundarstaður var húsnæði félagsins. Fundinn sátu,
Ágúst Ingi Jónsson, Flóvent Máni Theódórsson, Hafþór Snorrason, Haukur Jónsson
Heiðar Hinriksson, Hermann Sigurgeirsson, Hlynur Guðmundsson, Sigurþór
Hjörleifsson og Sigurður Árnason.
Forföll tilkynnti: Jóhann Þorvaldsson,
Umsjón fundarins var í höndum Sigurðar Árnasonar í forföllum Jóhanns
Þorvaldssonar.
Dagskrá:
1. Menningarkvöld. DART open, pottafjör, dósasöfnun, kertagerð, jólakortaskreitingar,pakkaskipti,jólakökugerð,konfektgerð,bjórsmökkun,jólahvað, inntaka Sigþórs, og jólagleði Heiðars
verður haldinn laugardaginn 10. desember n.k. kl. 17:30. Mætt verður í húsnæði
félagsins.
2. Árshátíðarmálefni. Hafþór f.h. RT-11 er búinn að staðfesta Höllina v. árhátíðar n.k.
vor. Hauk, Heiðari og Sigurði falið að finna út með verð á árshátíð og
fulltrúaráðsfund n.k. vor.
3. Þorsteinn Ívar Þorsteinsson samþykktur sem gestur á næsta reglulega fund RT-11.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 21:20.
Fundarritari, Haukur Jónsson.