fundur 27.08.11
FUNDARGERÐ. Fundur 27.08.2011
1. fundur starfsárs Round Table 11, Vestmannaeyjar, var haldinn á Suðurlandi af stjórn klúbbsins þann 27. ágúst 2011. Fundinn sátu Ágúst Ingi Jónsson, Hafþór Snorrason, Hermann Sigurgeirsson, Hlynur Guðmundsson og Sigurður Árnason.
Dagskrá:
1. Ágúst Ingi, Hlynur og Sigurður héldu til Landeyjarhafnar með fyrstu ferð Herjólfs, og þaðan var haldið af stað austur til Steina þar sem Hermann var sóttur. Þaðan var keyrt vestur á Stokkseyri þar sem farið var í kajak róður um vatnasvæðið. Það sýndi sig enn og aftur, að Hermann er mjög hrifinn af þeim vatnasvæðum sem klúbburinn hefur verið að heimsækja, því hann heftur tekið það að sér að bera saman bleytu þeirra. Þegar komið var að landi, beið Hafþór eftir hópnum, en hann hafði ekki komist með Herjólfi í fyrstu ferð um morguninn.
2. Næsta stoppistöð var Selfoss þar sem fengið var sér örlítið að snæða áður en farið var í verslunarleiðangur og keypt bæði matur og drykkur.
3. Frá Selfossi var haldið austur í Seljavallalaug, þar sem notið var kyrrðar náttúru og þægilegrar útisundlaugar. Þar sem öll meðferð áfengis var bönnum í lauginni, þá pössuðum við okkur á að vera með dósirnar bara á bakkanum.
4. Eftir dásamlega afslappaða sundlaugaferð var haldið aftur að Steinum, þar sem Hermann bauð okkur í „ættaróðalið“. Var grillað og haft það gott þar um kvöldið.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. ??:??.
Fundarritari, Sigurður Árnason