Fundur 05.12.11
FUNDARGERÐ. Fundur 05.12.11
Ár 2011, mánudagur 5. desember kl. 20:00, var haldinn 9. fundur starfsárs Roundtable 11, Vestmannaeyjum. Fundarstaður var húsnæði félagsins. Fundinn sátu, Ágúst Ingi Jónsson, Hafþór Snorrason, Haukur Jónsson Heiðar Hinriksson, Hlynur Guðmundsson, Jóhann Þorvaldsson og Sigurður Árnason. Forföll tilkynntu: Flóvent Máni Theódórsson, Hermann Sigurgeirsson og Sigurþór Hjörleifsson,
Umsjón fundarins var í höndum stjórnar í forföllum Flóvents Mána Theódórssonar.
Dagskrá:
1. Kynningarhringur.
2. Þrjár mínútur. Umræðuefni var félagsmenn sem ekki uppfylla skilyrði félagsskaparins s.s. varðandi mætingu, þátttöku og greiðslur félagsgjalda.
3. Færeyjaferð. Mögulegt er að fulltrúaráðsfundur sem á að halda í Færeyjum í febrúar verði fluttur til Reykjavíkur vegna ferðkostnaðar. Umræður fóru fram meðal félagsmanna. Einróma var samþykkt að mótmæla fordæmi sem getur skapast. Hauk og Sigurði falið að svara RTÍ ef af verður í samræmi við umræður fundarins.
4. Önnur mál. Minnt er á jólagleði 10. desember n.k. kl. 17:30.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 22:00.
Fundarritari, Haukur Jónsson.