fundur 05.09.11
FUNDARGERÐ. Fundur 05.09.11
Ár 2011, mánudagur 5. september kl. 19:00, var haldinn 2. fundur starfsárs Roundtable 11, Vestmannaeyjum. Fundarstaður var húsnæði félagsins. Fundinn sátu, Hafþór Snorrason, Haukur Jónsson, Heiðar Hinriksson, Hlynur Guðmundsson og Sigurður Árnason. Forföll tilkynntu: Ágúst Ingi Jónsson, Flóvent Máni Theódórsson, Hermann Sigurgeirsson, Jóhann Þorvaldsson og Zindri Freyr Ragnarsson
Umsjón fundarins var í höndum stjórnar.
Dagskrá:
1. Matarfundur, boðið var uppá lasagna a la Siggi.
2. Auglýsingamál, farið yfir mögulegar styrktarlínur í félagatal Roundtable. Listi verður sendur á félagsmenn og þurfa þeir að skila af sér fyrir 30. sept. nk.
3. Dagskrá starfsársins lögð fram og kynnt af formanni.
4. Kynningarmyndband vegna árhátíðar 2012, samþykkt að ræða við Zindra um leikstjórn og útfærslu á myndbandi sem verði tilbúið fyrir næsta fulltrúaráðsfund.
5. Mánaðargjald félagsmanna RT-11 hækkar í kr. 3.000 frá 1. september 2011.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 21:00.
Fundarritari, Haukur Jónsson.