Fundur 29.11.10
FUNDARGERÐ. Fundur 29.11.10
Ár 2010, mánudagur 29. nóvember kl. 20:00, var haldinn 7. fundur starfsárs Roundtable 11, Vestmannaeyjum. Fundarstaður var húsnæði félagsins. Fundinn sátu: Ágúst Ingi Jónsson, Hafþór Snorrason, Haukur Jónsson og Sigurður Árnason. Frá LC-11: Dagrún Sigurgeirsdóttir, Gíslína Dögg Bjarkadóttir og Sigríður Vigdís Ólafsdóttir.
Til fundarins var boðað af hálfu LC-11, með samþykki formanns RT-11.
Dagskrá:
1. Húsnæðismál. Rætt um húsnæðisreglur, RT-11 hefur sent drög að reglum á LC-11 konur en ekki fengið viðbrögð. Samþykkt að RT-11 hafi frumkvæði að því að funda með hússtjórnararmi LC og fullklára húsreglur félaganna. Ennfremur var rætt um sameiginlegan hússjóð vegna innkaupa.
2. Dagrún óskaði eftir að framvegis yrði áfengi ekki pínt ofaní Hafþór á RT viðburðum.
3. LC konur eru samþykkar því að RT – 11 félagar hengi upp veifur og fána í húsnæði félaganna.
4. Stefnt er að Bochia móti síðustu helgina í maí 2011, LC sjái um skipulagningu og samhliða verði fjölskyldudagur félaganna.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 20:50.
Fundarritari, Haukur Jónsson.