Fundur 29.03.10
FUNDARGERÐ.
Ár 2010, mánudagur 29. mars kl. 19:15, var haldinn 14. fundur starfsárs Roundtable
11, Vestmannaeyjum. Fundarstaður var húsnæði félagsins. Fundinn sátu:
Ágúst
Ingi Jónsson, Flóvent Máni Theodórsson, Hafþór Snorrason, Haukur Jónsson, Heiðar
Hinriksson, Jóhann Þorvaldsson, Sigurður Árnason og Örn Hilmisson. Forföll
boðuðu: Hermann Sigurgeirsson og Hlynur Guðmundsson.
Jóhann „JoJo“ Þorvaldsson átti umsjón fundarins. Til fundarins var boðað
sunnudaginn 28.03.10 og áminning send út á fundardag. Send var út dagskrá
fundarins í tölvupósti. JoJo bauð uppá kynngimagnaða skötuselssúpu sem var vel látið
af.
Dagskrá:
1. Þrjár mínútur. Umræðuefni var framtíðarsýn Roundtable í Eyjum. Almennt voru
fundarmenn bjartir á framtíðina en til þess að svo geti orðið þarf að skerpa á og
fínpússa nokkra hnökra í starfseminni.
2. Framboðsmál. Sigurður Árnason býður sig fram í varaformanns, Jóhann
Þorvaldsson í embætti gjaldkera, Ágúst í embætti siðameistara og Haukur til
embættis ritara.
3. Innheimtumál. Sigurður hvatti félagsmenn til að ganga frá skuldum sínum við
klúbbinn hið fyrsta.
4. Open Dart mót. Erni var falið að endurvekja og koma af stað Open Dart móti
innan klúbbsins hið fyrsta og útvega til þess nauðsynlegan búnað.
5. Formanni falið að finna heppilega dagsetningu fyrir aðalfund A og B.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 21:26.
Fundarritari, Haukur Jónsson.