Fundur 28.08.10
FUNDARGERÐ. Fundur 28.08.10
Ár 2010, laugardagur 28. ágúst kl. 11:30, var haldinn 1. fundur starfsárs Roundtable 11, Vestmannaeyjum. Fundarstaður var Vestmannaeyjar og suðurland. Fundinn sátu: Hafþór Snorrason, Haukur Jónsson, Hermann Sigurgeirsson og Sigurður Árnason.
Dagskrá:
1. Fundur hófst í Herjólfi, haldið var í Landeyjarhöfn og þaðan keyrt að Hvítá. Siglt var niður ánna í gúmmíbát. Kvöldmatur var í Gallerí Pizza, Hvolsvelli. Haldið var heim til Eyja með kvöldferð kl. 22:30. Voru fundarmenn á því að fyrsti fundur vetrarins hefði heppnast vel og verið sérstaklega ánægjulegur og gæfi fyrirheit um spennandi starf framundan.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 23:10.
Fundarritari, Haukur Jónsson.