Fundur 28.08.10

October 20th, 2011 Leave a comment Go to comments

FUNDARGERÐ. Fundur 28.08.10
Ár 2010, mánudagur 13. september kl. 19:00, var haldinn 2. fundur starfsárs Roundtable 11, Vestmannaeyjum. Fundarstaður var 900-Grillhús og húsnæði félagsins. Fundinn sátu: Allir félagsmenn nema Aðalsteinn „Gosi“ Baldursson og Jóhann „JoJo“ Þorvaldsson. Á fundinn mætti Sindri Freyr Ragnarsson.
Haukur Jónsson átti umsjón fundarins og stjórnaði honum.
Dagskrá:
1. Fundur hófst í 900-Grillhúsi þar sem félagsmenn nutu góðra veitinga að hætti hússins. Að matarhaldi loknu var haldið í klúbbhús kl. 20:30.
2. Kynningarhringur.
3. Þrjár mínútur. Umræðuefni var tilgangur og markmið Rountable þar sem félagsmenn greindu frá reynslu sinni og upplifun af starfi félagsins.
4. Auglýsingar. Líklegum auglýsendum var skipt á félagsmenn, Sigurður Árnason sendir upplýsingar til félagsmanna.
5. DA-RT mót verður haldið laugardaginn 25. september n.k. Umsjón hafa Ágúst Ingi Jónsson og Hlynur Guðmundsson.
6. Beiðni JoJo um afnot af sal 8. – 10. október var tekinn fyrir. Félagsmenn heimila afnotinn í trausti þess að hann mæti á fulltrúaráðsfund RTÍ sem haldinn verður á sama tíma.
7. Á næsta fundi þann 27. september verður kosið um inngöngu Sindra Freys Ragnarssonar í félagið. Umsjón með fundinum hefur Flóvent Máni Theodórsson.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 22:00.
Fundarritari, Haukur Jónsson.

  1. No comments yet.

Formenn RT 11 Vestmannaeyjum

Frá upphafi


Aðalsteinn "Gosi" Baldursson
1997-1998
Björgvin Arnaldsson
1998-1999
Sigurður Árnason
1999-2000
Heiðar Hinriksson
2000-2001
Pétur Sigurjónsson
2001-2002
Aðalsteinn Baldursson
2002-2003
Jóhann Þorvaldsson
2003-2004
Haukur Jónsson
2004-2005
Hafþór Snorrason
2005-2006
Jóhann Þorvaldsson
2006-2007
Örn Hilmisson
2007-2008
Heiðar Hinriksson
2008-2009
Flóvent Máni Theodórsson
2009-2010
Hafþór Snorrason
2010-2011
Sigurður Árnason
2011-2012