Fundur 27.10.2009
FUNDARGERÐ. Fundur 27.10.2009
Ár 2009, mánudagur 26. október kl. 20:00, var haldinn 4. fundur starfsárs Roundtable 11, Vestmannaeyjum. Fundarstaður var húsnæði félagsins. Fundinn sátu: Hlynur Guðmundsson, Hermann Sigurgeirsson, Hafþór Snorrason, Ágúst Ingi Jónsson, Haukur Jónsson, Heiðar Hinriksson, Sigurður Árnason og Örn Hilmisson.
Heiðar Hinriksson átti fundinn og stjórnaði honum.
1. Umræðuefni þriggja mínútna voru rök með eða á móti því að Ísland gengi í Evrópusambandið.
2. Uppgjör fulltrúaráðsfundar. Farið var yfir uppgjör fulltrúaráðsfundar, ljóst er að tap er nokkuð. Samþykkt að senda bréf til landsstjórnar varðandi aðkomu þeirra að málinu og fjárhagslegra bóta krafist. Sigurður sendir tölvupóst til félagsmanna með bréfi sem hann, Haukur og formaður LC-11 hafa samið. Athugasemdum verði komið á framfæri í seinasta lagi miðvikudagsmorgun 28. október en þá verði bréfið sent á landsstjórn.
3. Næsti reglulegi fundur sem haldinn veður 9. nóvember n.k. verður í umsjá Hermanns í stað Smára. Á fundinum verður kosið um væntanlegan félagsmann Hlyn Guðmundsson.
4. Fundarmenn samþykktu að heimasíða RT-11 verði virkjuð hið fyrsta.
5. Samþykkt að gefa eiganda vatnsverksmiðjunar gjöf við hæfi fyrir afnot af húsnæði hans á síðasta fulltrúaráðsfundi t.d. merktur stein með kveðju frá RT-11.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 22:00.
Fundarritari, Haukur Jónsson.