Fundur 25.10.10
FUNDARGERÐ. Fundur 25.10.10
Ár 2010, mánudagur 25. október kl. 20:00, var haldinn 5. fundur starfsárs Roundtable 11, Vestmannaeyjum. Fundarstaður var húsnæði félagsins. Fundinn sátu: Ágúst Ingi Jónsson, Hafþór Snorrason, Haukur Jónsson, Hlynur Guðmundsson og Heiðar Hinriksson. Forföll boðuðu: Hermann Sigurgeirsson, Jóhann Þorvaldsson og Sigurður Árnason.
Umsjá fundarins var í höndum Heiðars Hinrikssonar.
Dagskrá:
1. Þrjár mínútur. Umræðuefni var ungur aldur þjónustufólks á Verslunarmanna-balli sl. helgi.
2. Heiðar hélt vinnustaðarkynningu þar sem hann fór yfir notagildi helstu verkfæri sem lögreglan notar til þess að tryggja frið samborgaranna. Hlynur er sérlega sannfærður um notagildi eftir vel heppnaða sýnikennslu á eigin skinni.
3. Samþykkt að kjósa um vænta nýja félaga á næsta fundi: Hilmar Kristjánsson og Kára Höskuldsson.
4. DA-RT Open verður haldið n.k. laugardagskvöld 30. október kl. 20:00
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 22:05.
Fundarritari, Haukur Jónsson.