Fundur 12.04.10
Ár 2010, mánudagur 12. apríl kl. 20:00, var haldinn 15. fundur starfsárs Roundtable
11, Vestmannaeyjum. Fundarstaður var húsnæði félagsins. Fundinn sátu:
Ágúst
Ingi Jónsson, Hafþór Snorrason, Haukur Jónsson, Hlynur Guðmundsson, Hermann
Sigurgeirsson og Sigurður Árnason. Forföll boðuðu: Flóvent Máni Theodórsson og
Örn Hilmisson.
Hafþór Snorrason átti umsjón fundarins og stjórnaði honum.
Dagskrá:
1. Borist hefur tillaga í tölvupósti frá RT-3 um tilnefningu heiðursfélaga innan RT
hreyfingarinnar á Íslandi. Flóvent formanni falið að koma skilaboðum til
bréfritara að vinna málið á faglegan hátt svo mögulegt sé að taka afstöðu til
málsins innan klúbbanna.
2. Þrjár mínútur. Umræðuefni var nýtt geymslusvæði í Herjólfsdal til nota fyrir ÍBV.
Örn Hilmisson mátti þakka guði sínum fyrir að vera ekki viðstaddur fundinn.
3. Sigurður gjaldkeri gerði grein fyrir rekstrarreikningi starfsársins. Reksturinn er
réttu megin við núllið þrátt fyrir erfiðan vetur fjárhagslega. Sigurður ítrekaði við
félagsmenn til að ganga frá skuldum sínum við klúbbinn hið fyrsta.
4. Vinnustaðarkynning í Sorpu. Hafþór fór yfir og kynnti fundarmönnum starfsemi
sorpbræðslunnar í Vestmannaeyjum. Endað var með nettri flugeldasýningu að
hætti varaformanns sem olli íkveikju í ritara klúbbsins. Slökkvistarf tókst með
ágætum og er líðan ritara eftir atvikum góð.
5. Stefnt er að aðalfundi B, miðvikudaginn 21. apríl n.k..
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 22:20.
Fundarritari, Haukur Jónsson.