Fundur 11.10.10
FUNDARGERÐ. Fundur 11.10.10
Ár 2010, mánudagur 11. október kl. 20:00, var haldinn 4. fundur starfsárs Roundtable 11, Vestmannaeyjum. Fundarstaður var húsnæði félagsins. Fundinn sátu:
Ágúst Ingi Jónsson, Hafþór Snorrason, Haukur Jónsson, Hlynur Guðmundsson, Jóhann „JoJo“ Þorvaldsson og Sigurður Árnason. Á fundinn kom Aðalsteinn Árnason heiðursfélagi hreyfingarinnar nr. 3.
Forföll boðuðu: Flóvent Máni Theodórsson, Hermann Sigurgeirsson og Sindri Freyr Ragnarsson.
Umsjá fundarins var í höndum stjórnar.
Dagskrá:
1. Farið var yfir atburði og sýndar myndir frá fulltrúaráðsfundi 8. – 9. október, Vallhöll Eskifirði. Ferðin austur þótti árangursrík og stóð Hlynur sig einstaklega vel í innlánsmálum.
Fram kom að sótt hefði verið um að halda árshátíð RTÍ árið 2012. Nýju félagatali var dreift.
Varaformanni var falið að endurskoða liðinn „skýrslur formanna“ á fulltrúaráðsfundum fyrir næsta fulltrúaráðsfund m.t.t. breytinga. Sá liður er orðinn umfangsmikill m.t.t. aukins fjölda klúbba.
2. Tiltekt verður á drasli í eigu RT-11 í geymslu Ísfélagsins n.k. miðvikudag kl. 20:00.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 21:45.
Fundarritari, Haukur Jónsson.