Fundur 08.02.2010
FUNDARGERÐ. Fundur 08.02.2010
Ár 2010, mánudagur 8. febrúar kl. 20:00, var haldinn 10. fundur starfsárs Roundtable 11, Vestmannaeyjum. Fundarstaður var húsnæði félagsins. Fundinn sátu: Ágúst Ingi Jónsson, Hafþór Snorrason, Haukur Jónsson, Hlynur Guðmundsson, Sigurður Árnason og Örn Hilmisson. Flóvent tilkynnti forföll í SMS og lét þess getið að RT-11 heimasíðan kæmist í gagnið á morgun.
Siðameistari tvöfaldaði sekt formanns frá fyrri fundi þar sem sú skuld hefur ekki enn verið gerð upp. Erni Hilmissyni var falið að handrukka formann.
Dagskrá:
1. Beint flug milli Akureyrar og Vestmannaeyja hefur verið fellt niður en þeim sem hafa bókað sig frá Eyjum eiga kost á flugi til Reykjavíkur og þaðan til Akureyrar gegn sama gjaldi. Félagsmenn eiga bókað í flug frá Eyjum kl. 17:35 föstudaginn 12. febrúar.
2. Farið var yfir fyrirliggjandi tillögur til lagabreytinga, Hauk og Sigurði falið að ljúka tillögu varðandi „baktryggingu“ fulltrúafunda.
3. Hauk falið að ganga frá formannsumboði vegna fulltrúaráðsfundar 12. – 14. febrúar 2010.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 21:30.
Fundarritari, Haukur Jónsson.