Fundur 01.02.2010
FUNDARGERÐ. Fundur 01.02.2010
Ár 2010, mánudagur 1. febrúar kl. 20:00, var haldinn 9. fundur starfsárs Roundtable 11, Vestmannaeyjum. Fundarstaður var húsnæði félagsins. Fundinn sátu: Ágúst Ingi Jónsson, Haukur Jónsson, Hlynur Guðmundsson, Sigurður Árnason og Örn Hilmisson. Sigurður mætti kl. 20:40 og Örn kl. 20:42.
Dagskrá:
Flóvent Máni Theodórsson átti fundinn en til hans var boðað með SMS skeyti kl. 18:42. Formaður lét vita kl. 20:14 með SMS skeyti að hann kæmist ekki á fundurinn. Hann lét þess ekki getið að öðrum væri falin stjórn fundarins og þar af leiðandi var fundurinn „stjórnlaus“.
Sitjandi siðameistari sektar Flóvent Mána formann um kr. 10.000,- eða flösku af Tópasdrykk sem verði afhent á næsta fundi, 8. febrúar n.k.. Fundarmenn ítreka að fundarboðun sé virt og forföll tilkynnt í tíma. Hlutverk formanns er að sjá til þess að þetta sé í lagi.
Fram kom hjá Sigurði gjaldkera að uppgjör vegna fulltrúaráðsfundar hefur farið fram til LC-11. Ákveðið að félagsmönnum gefist kostur á að kaupa af RT-11 mjöð á kr. 3.000,- fyrir fulltrúaráðsfund 12. – 13. febrúar n.k.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 21:50.
Fundarritari, Haukur Jónsson.