Fundur 09.11.2009
FUNDARGERÐ. Fundur 09.11.2009
Ár 2009, mánudagur 9. nóvember kl. 20:00, var haldinn 5. fundur starfsárs Roundtable 11, Vestmannaeyjum. Fundarstaður var húsnæði félagsins. Fundinn sátu: Flóvent Máni Theodórsson, Hermann Sigurgeirsson, Hafþór Snorrason, Haukur Jónsson, Jóhann Þorvaldsson og Örn Hilmisson. Hlynur Guðmundsson kom á fund undir tölulið 4.
Hermann Sigurgeirsson átti fundinn og stjórnaði honum. Veittur mjöður á fundinum var í boði Hlyns.
1. Samþykkt að Sigurhans Guðmundsson og Sindri Freyr Ragnarsson sætu næsta fund.
2. Samþykkt að JoJo staðfesti pöntun á 400 stk. af barmerkjum.
3. Formannskeðja RT-11 kom í ljós á fundinum en hún fannst í glasi í eldhússkáp. Grunur fundarmanna beindist að fjarstöddum varaformanni klúbbsins. Félagsmaður í hússtjórn var uppvís að því að lána lykill til frjálslegrar notkunar og fékk gula spjaldið að launum.
4. Leynileg kosning fór fram um Hlyn Guðmundsson sem félagsmann. Var hann samþykktur samhljóða í klúbbinn og tekinn velkominn á formlegan hátt. Formanni falið að tilkynna hann til landstjórnar RT.
5. Umræðuefni þriggja mínútna var afstaða félagsmanna v. framkomu héraðsbúa, norðanmanna og forseta RTÍ varðandi sl. fulltrúaráðsfund í Eyjum. Almennt voru fundarmenn á því að hegðun þeirra væri forkastanleg og ekki til eftirbreytni.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 21:30.
Fundarritari, Haukur Jónsson.